02.03.1945
Efri deild: 140. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1834 í B-deild Alþingistíðinda. (4760)

113. mál, laun starfsmanna ríkisins

Gísli Jónsson:

Þótt ég sé einn af fylgismönnum ríkisstj. og það sé samningsatriði milli stjórnarflokkanna, að sett séu launalög á þessu þingi, þá tel ég, að það frv., sem hér liggur fyrir, sé langt frá þeim grundvelli, sem lagður var að þessum samningi. Ég sé mér ekki fært að fylgja þessu máli og segi því nei.