28.02.1945
Neðri deild: 140. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1843 í B-deild Alþingistíðinda. (4836)
82. mál, endurveiting borgararéttinda
Forseti (JörB):
Orsökin til þess, að málið er tekið á dagskrá nú, er sú, að flm. málsins hefur gert þá till. um það til mín, að málið fái afgreiðslu nú. Málið hefur verið við þessa umr. síðan í vor, svo að ætla mætti, að hægt hefði verið að taka ákvörðun um það. Sé ég mér ekki fært upp á mitt eindæmi að sitja á málinu og láta það ekki ganga fram.
Hins vegar vil ég segja það út af ummælum hæstv. dómsmrh., að fyrir nokkrum dögum átti ég tal við form. allshn. Nd. um það, hvort hann mundi ekki kalla saman fund til þess að athuga þetta mál frekar, og tjáði hann mér, að hann sæi ekki ástæðu til að kalla saman fund út af þessu máli. Sá ég mér þá ekki annað fært en taka málið á dagskrá, og þess vegna er það til meðferðar í dag.