28.02.1945
Neðri deild: 140. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1844 í B-deild Alþingistíðinda. (4838)

82. mál, endurveiting borgararéttinda

Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson):

Ég vil ítreka það, að ég óska eindregið að eiga tal við n., áður en málið er afgr. Mér finnst t.d. meiri hl. n. gera nokkuð hæpna ályktun, þar sem hann vill gera upp á milli þess, hvort þeir, sem misst hafa borgararéttindi, hafa valdið líkamlegum meiðslum eða ekki.