15.02.1945
Efri deild: 128. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1898 í B-deild Alþingistíðinda. (4933)

257. mál, veltuskattur

Magnús Jónsson:

Bæði af því, að till. er óaðgengileg í því formi, sem hún er í, og ekki verður skilið í sundur það, sem aðgengilegt er, og það, sem er óaðgengilegt, og með því, að ég tel undanþáguatriði 10. gr. geta náð til þess, sem er nauðsynlegt að framkvæma, segi ég nei.

3. gr. samþ. með 11:4 atkv.

4.–12. gr. samþ. með 10:4 atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 11:4 atkv.