06.02.1945
Efri deild: 119. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1959 í B-deild Alþingistíðinda. (5041)

254. mál, fasteignamat

Fjmrh. (Pétur Magnússon):

Herra forseti. Þetta frv. er flutt í hv. Nd. af fjhn. þeirrar hv. d., eftir beiðni ríkisstj. Það miðar að því að lækka kostnað við fasteignamat, sem verið hefur allmikill á undanförnum árum.

Ég vil leyfa mér að mælast til þess, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr, og hv. fjhn. til athugunar.