14.11.1944
Sameinað þing: 65. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 375 í D-deild Alþingistíðinda. (5101)

127. mál, landhelgisgæzla og björgunarstarfsemi

Forseti (GSv):

Tilætlunin var, að fundur yrði ekki haldinn lengur en til kl. 3,30. Enn eru fleiri á mælendaskrá og þar á meðal hv. flm. þessa máls. Næstur tekur til máls hæstv. dómsmrh., en að því búnu verður umr. frestað.