07.12.1944
Sameinað þing: 72. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 456 í D-deild Alþingistíðinda. (5204)

186. mál, alþjóðlega vinnumálasambandið

Frsm. (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. — Fjvn. mælir einróma með því, að till. verði samþ. óbreytt.

Eins og þm. er kunnugt, er till. flutt í framhaldi af þál. samþ. 15. okt. 1943, þegar ríkisstj. var falið að undirbúa þátttöku okkar í þessari stofnun, og samkv. málefnasamningi stjórnarflokkanna er þátttakan ákveðin. Kostnaður er talinn verða mjög hóflegur.