26.02.1945
Neðri deild: 138. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1968 í B-deild Alþingistíðinda. (5214)
292. mál, stýrimannaskólinn í Reykjavík
Frsm. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. dóms- og félmrh. fyrir undirtektir hans undir þessar brtt. Þær eru bornar fram til þess að taka ákveðnar fram það, sem í frv. er nú þegar. En svo mun til hafa verið ætlazt, að þessum námskeiðum yrði haldið áfram fyrir þá menn, sem eiga að öðlast réttindi til að fara með skip yfir 30 rúmlestir að stærð. Og um það held ég, að ágreiningur hafi ekki verið við skólastjóra stýrimannaskólans. Hann taldi það rétt og skylt, þó að í sumum tilfellum gæti kennsla einstakra manna komið þar til greina. En það er skoðun sjútvn., að þessir menn skyldu ganga á námskeið. Og þess vegna leggur n. til, að þetta verði bundið í l., eins og það hefur verið í l. frá 1936 um kennslu handa mönnum, sem höfðu réttindi til þess að stjórna skipum, er voru allt að 75 rúmlestir, en var nú ætlazt til, samkv. frv., að félli niður, þar sem það próf er úr sögunni.
Viðvíkjandi því, að þetta gæti verið tilsvarandi fyrri vetrar námi á stýrimannaskóla í Reykjavík, skal ég taka fram, að ég hef ekki náð í skólastjórann til þess að tala um það við hann. En vel undirbúnir piltar hafa að sjálfsögðu getað stytt sér nám við stýrimannaskólann með þeirri undirbúningsmenntun, sem þeir hafa hlotið með því að vera á námskeiðum. Hins vegar, ef þessi menntun, sem þeir fá á námskeiðunum, er ekki svo mikil, að þeir komist fyrir hana gegnum skólann á einum vetri, er ekkert um það að segja. En þetta hvetur menn til þess að búa sig betur undir námið en ella. Og það er skoðun sjútvn., að þessi aðferð þýði það, að fleiri menn leggi sig fram um það að taka stærra fiskimannapróf heldur en áður. Og efnislega er enginn ágreiningur á milli n. og skólastjóra stýrimannaskólans um þetta mál, svo að ég hygg, að hv. þdm. geti með góðri samvizku veitt fylgi sitt þessari brtt., sem n. er sammála um að gera, en hún er um efni, sem ekki vannst tími til að taka nógu nákvæmlega fram, þegar málið var flutt.