11.10.1944
Sameinað þing: 53. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 461 í D-deild Alþingistíðinda. (5258)
158. mál, byggingarmál
Flm. (Bjarni Benediktsson):
Till. þessari fylgir allýtarleg grg., og sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða meira um hana en þar er gert. Efni till. er það, að mþn. verði skipuð til að íhuga, með hverjum hætti verði bezt greitt fyrir húsbyggingum í kaupstöðum og kauptúnum og að sérstaklega skuli tekin til endurskoðunar l. um verkamannabústaði og l. um byggingarsamvinnufélög. Má í því sambandi geta þess, að af hálfu forstöðumanna beggja þessara félaga, sem starfa hér í bæ, eru komnar fram áskoranir um, að slík mþn. verði skipuð.
Að öðru leyti er ýtarlega gerð grein fyrir málinu í grg., og leyfi ég mér að vitna til hennar.
Ég legg til, að till. verði vísað til síðari umr. og allshn.