16.12.1944
Sameinað þing: 77. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 462 í D-deild Alþingistíðinda. (5264)
158. mál, byggingarmál
Frsm. meiri hl. (Þóroddur Guðmundsson):
Það voru allir sammála um það í fjvn., að mál þetta þyrfti athugunar við og heppilegast væri að skipa n. til þess að athuga þetta, en algerlega rangt, sem hv. frsm. minni hl. fjvn. segir, að þarna sé um mismun að ræða, að því leyti, að meiri hl. vilji skipa nýja n., en minni hl. vilji fela ríkisstj. þetta, en ríkisstj. mun líka skipa til þess n., svo að það er enginn mismunur hvað þetta snertir. Meiri hl. vill leggja til, að þessi till. verði samþ. óbreytt, ekki fyrir það, að byggingarmál sveitanna þurfi ekki athugunar við, heldur telur n., að heppilegra sé, að sérstök n. athugi byggingarmál sveitanna, hvort sem þetta yrði ný n. eða Búnaðarfél. Ísl. yrði falið að gera till. um málið; þar eð þeirri stofnun er haldið uppi af ríkissjóði með fjárframlögum, ætti hún að geta látið þessa athugun fara fram.
Það er ekki rétt, sem hv. frsm. minni hl. segir, að það standi eiginlega eins á um byggingar á kaupstaðalóðum og utan þeirra. Það er í raun og veru gerólíkt mál, byggingarmál kaupstaðanna og byggingarmál sveitanna, og menn, sem gætu verið prýðilega til þess fallnir að athuga byggingarmál í kaupstöðum, kynni að skorta nauðsynlega þekkingu til þess að gera nýtilegar till. um byggingarmál sveitanna. Ég ætla svo ekki að orðlengja þetta frekar, en legg eindregið til, að till. verði samþ. óbreytt.