09.01.1945
Sameinað þing: 82. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 479 í D-deild Alþingistíðinda. (5304)
118. mál, kaup á hlutabréfum Útvegsbanka Íslands h.f.
Ásgeir Ásgeirsson:
Ég ætla ekki að fara út í forsögu þessa máls. Ég skildi ræðu hæstv. fjmrh. svo, að hann ætlaði að nota heimildina að því er varðar innstæður erlendra eigenda, og um fé, er var á hlaupareikningi, hafa ráðstafanir þegar verið gerðar. Eftir eru þá aðallega menn, sem eignazt hafa hlutabréfin eftir að Útvegsbanki Íslands var stofnaður, en kynnu nú að vilja selja þau ríkinu. Ég álít, að þau bréf eigi einnig að kaupa, ekki af því, að ríkið hafi skyldur við þá menn, heldur af því, að það sé hagkvæmt. Útvegsb. heitir hlutafélag, en er það ekki, því að einn hluthafinn ræður öllu, og vald hans er ótakmarkað. Í öðru lagi hefur þessi hluthafi, ríkið, sérstakar skyldur umfram aðra hluthafa og ber svo að kalla ótakmarkaða ábyrgð á rekstri bankans. Enn fremur nýtur þessi stofnun skattfrelsis og annarra mikilvægra réttinda, og má segja, að eðlilegt sé, að ríkið sé sá hluthafinn, sem arðinn af þessum sérréttindum hlýtur. Menn geta sagt, að hlutabréfin séu nú ákaflega lágt virt á „pari“, en gæta verður þess, að ekki er líklegt, að hærri arður en 4% p.a. verði greiddur, því að ríkið sér mestan hag í því og þörf að leggja ríflegar upphæðir til hliðar til tryggingar rekstri bankans og bankastarfseminnar í landinu í heild.
Ég tel, að heimildin til kaupanna ætti að vera föst heimild frá ári til árs. Engan á að knýja til að láta bréf sín af hendi. Ríkið þarf þá vonandi aldrei að leggja fé úr sínum sjóði til kaupanna, nema það vilji. Það er enginn vandi nú að losna við litla upphæð af stuttum skuldabréfum. Með 4% vöxtum af 4½ millj. bankahlutabréfa, sem ríkið á nú, ætti ekki að reynast örðugt að kljúfa kaup framboðinna bréfa og standa undir þeirri eignabreytingu framvegis. Ég teldi réttast að halda þessum kaupum utan ríkisreikninganna á þann hátt. Hér er verið að kaupa verðbréf, sem eru verðmætari fyrir ríkissjóð en fyrir nokkurn annan, og er það nokkurt íhugunarefni.
Ég vildi láta þetta koma fram. Ég er því fylgjandi, að ríkið innleysi sem mest af bréfunum.