13.12.1944
Sameinað þing: 75. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 499 í D-deild Alþingistíðinda. (5365)

222. mál, virkjun Andakílsár

Skúli Guðmundsson:

Ég þarf ekki að gera athugasemd við þessa síðari ræðu hv. þm. Borgf. Ég vil aðeins segja það, að ég lít svo á, að þótt ríkið veiti stuðning á þennan hátt til að halda áfram virkjuninni, þá sé engu slegið föstu um það, hvaða aðili hafi endanlega þessar framkvæmdir með höndum.