24.01.1945
Sameinað þing: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 539 í D-deild Alþingistíðinda. (5406)

192. mál, rafveitulán fyrir Sauðárkrókshrepp

Forseti (GSv):

Það skal tekið fram um meðferð þessa máls, að þó að bæði þessi mál, 14. og 15. mál á dagskrá, snerti nokkuð sama efni, þá er þess að gæta, að þetta mál, sem nú liggur fyrir, er aðeins til fyrri umr., og þó að það yrði látið ganga til síðari umr., þá er það ekki komið neitt á undan hinu málinu, því að síðara málið verður afgr. til fullnustu.