05.02.1945
Neðri deild: 121. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í D-deild Alþingistíðinda. (5432)

274. mál, bifreiðar handa læknishéruðum

Frsm. (Páll Zóphóníasson):

Ég vil benda á það, að fjarri fer því, að dýralæknaumdæmi falli saman með búnaðarsambandssvæðum. (EystJ: Það vissi ég nú vel.) Þess vegna mun það vera erfitt að leysa inálið með því, að búnaðarsamböndin eigi bílana. Hins vegar eru dýralæknarnir svo fáir, að ég fyrir minn part mundi ekki setja mig á móti því, þó að þeir fái sams konar kjör .með bílana, en hins vegar er þá á það að líta, að tveir þeirra dýralækna, sem nú starfa, hafa fengið bíla og selt þá aftur með hagnaði, og þeir eiga ekki að fá bíla ódýra til þess eins að nota ekki til ferðalaga, heldur selja þá til ágóða fyrir sjálfa sig.