01.02.1944
Sameinað þing: 11. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1978 í B-deild Alþingistíðinda. (5477)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Sigfús Sigurhjartarson:

Herra forseti. — Fyrir nokkrum dögum bar ég fram í Nd. fyrirspurn til ríkisstj., sem þá var ekki unnt að fá svarað, vegna fjarveru þess ráðherra, sem það mál heyrði undir. Ég vil nú leyfa mér að endurtaka þá fyrirspurn, en hún var á þá leið, hvort n. sú, sem átti að rannsaka launalögin, hefði ekki lokið störfum sínum, og ef svo væri, hvort ríkisstj. teldi ekki hyggilegt að leggja ályktanir hennar fyrir hæstv. Alþingi.