01.02.1944
Sameinað þing: 11. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1978 í B-deild Alþingistíðinda. (5478)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Ég vil svara þessari fyrirspurn á þá leið, að álit þeirrar n., sem hér er um að ræða. er ekki enn þá komið fram. En hins vegar höfum við fengið frá n. skrá á launaflokkum og hvernig hún hugsar sér það. Þess vegna get ég ekki farið nánar inn á þetta að svo stöddu eða hvenær þetta verður lagt fyrir þingið. En þegar þetta álit kemur, mun ríkisstj. að sjálfsögðu taka það til athugunar. Um það, hvort álit n. verður lagt fram strax, get ég ekkert sagt, fyrr en ríkisstj. hefur haft tíma til að athuga það og hvort hún geti fallizt á allar þær till., sem þar koma fram.