21.09.1944
Sameinað þing: 46. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1993 í B-deild Alþingistíðinda. (5526)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Fjmrh. (Björn Ólafsson):

Herra forseti. Það er alveg rétt, að þetta frv. hefur ekki komið fram, en það er ekki af því að stj. hafi ekki ætlað að leggja það fyrir þingið, heldur bara af athugunarleysi í ráðuneytinu. Ég varð fyrir nokkru var við þetta og lagði svo fyrir, að þetta yrði undirbúið, svo að frv. verður lagt fram nú næstu daga.