10.01.1945
Neðri deild: 101. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2015 í B-deild Alþingistíðinda. (5555)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Forsrh. (Ólafur Thors):

Ég vil aðeins taka fram, að ég vísaði þessu máli til hæstv. atvmrh., af því að ég taldi eðlilegast, að hann svaraði því, þó að þetta sé mál allrar stj. En með því að ég hef gefið þær upplýsingar, sem ég hef gefið, tel ég tilgangslaust að beina nýjum fyrirspurnum til hæstv. atvmrh. Stj. mun ráðfæra sig við þingið og gefa upplýsingar, þegar ástæða er til þess, en ég tel, að nú sé ekki hægt að gefa frekari upplýsingar en þegar hafa verið gefnar.