02.03.1945
Sameinað þing: 99. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2019 í B-deild Alþingistíðinda. (5576)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Sigurður Kristjánsson:

Hæstv. forseti sagði., að um 7. og 8. mal á dagskrá yrði látið skeika að sköpuðu, hvort þau dagaði uppi, en ég vil benda hæstv. forseta á, að um 8. dagskrármálið er ekki nema ein umr. Vildi ég spyrja hæstv. forseta, hvort sú meðferð, sem þessi mál eiga að sæta, sé eftir ósk hæstv. stj. eða ekki. Sé svo ekki, vildi ég vænta þess, að hæstv. forseti vildi unna þessum málum sama réttar og öðrum málum.