06.02.1945
Sameinað þing: 91. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 562 í D-deild Alþingistíðinda. (5640)
268. mál, flutningur hengibrúar frá Selfossi að Iðu
Frsm. (Pétur Ottesen):
Fjvn. ræddi að sjálfsögðu um þetta mál bæði við samgmrh. og sendi auk þess till. til umsagnar vegamálastjóra, og er álit hans sem fskj, með nál. Einnig höfðu flm. till., áður en till. var flutt, rætt við hæstv. samgmrh. um orðalag hennar, og er tillgr. eiginlega orðuð í samræmi við það, sem hæstv. ráðh. vildi leggja til um þetta atriði.
Fjvn. hefur algerlega fallizt á þau rök, sem færð hafa verið fram fyrir því, að sjálfsagt væri, ef það reyndist kleift, að nota þessa brú, gömlu hengibrúna á Ölfusá við Selfoss, á Hvítá við Iðu. Vegamálastjóri telur að vísu nokkur vandkvæði á því, að þetta muni takast, með tilliti til þess, að nokkru lengri brú muni þurfa á Iðu en Ölfusárbrúin gamla er og auk þess sé ekki víst um, hvort styrkleiki Ölfusárbrúarinnar gömlu muni svara til þeirrar kröfu, sem gerð verður um framtíðarbrú á þessum stað. Hins vegar tekur vegamálastjóri ekki af um, að með nánari athugun á þessu máli mundi þetta ef til vill reynast kleift, og leggur mjög með því, að þetta sé athugað.
Það leiðir af sjálfu sér, að þetta er allmikið hagkvæmnisatriði, svo framarlega sem hægt er að nota gömlu Ölfusárbrúna, að geta þá notað hana svo nærri. Fjvn. mælir því með því, að þáltill. verði samþ. og framkvæmd verði fullkomin athugun á því, hvort ekki sé kleift að nota brúna og leysa þar með þá nauðsyn, sem er fyrir hendi um það að geta brúað Hvítá hjá Iðu. Um þetta hefur legið hér till. á undanförnum þingum, og hefur mjög verið rætt um nauðsyn þessa máls, en eins og getur um í nál., hefur sá kostnaður, sem af því leiðir að byggja nýja brú, vaxið það í augum, að ekki hefur orðið úr því, að það verk hafi verið framkvæmt, þrátt fyrir þá miklu nauðsyn, sem þar er fyrir hendi. Fjvn. leggur því til, að þessi till. verði samþ.