06.02.1945
Sameinað þing: 91. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 568 í D-deild Alþingistíðinda. (5663)

258. mál, rafveitur í Árnes- og Rangárvallasýslum

Jörundur Brynjólfsson:

Það skulu ekki verða mörg orð. Ég vil þakka hv. fjvn. fyrir afgreiðslu hennar á málinu. Reyndar hefði ég fremur kosið, hvað framkvæmdir áhrærir, að ákvæði upphaflegu till. hefðu verið látin halda sér, en ég vil samt sem áður mega vænta þess, að vel takist til um framkvæmdir, þó að till. væri breytt í þetta horf.