07.02.1945
Sameinað þing: 92. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 584 í D-deild Alþingistíðinda. (5712)
271. mál, endurskoðun og samþykkt ríkisreikninganna
Gísli Jónsson:
Ég sé ekki neina ástæðu til, að u. taki þetta til athugunar, fyrst og fremst vegna þess, að till. felur fullkomlega í sér það, sem henni er ætlað.
Í tilefni þess, sem hæstv. forseti hefur sagt, þá vil ég óska, að hæstv. forseti skipi svo fyrir um þetta mál, að ekki þurfi að skera niður umr. um jafnstórt mál og hér er á ferðinni. Það er óviðunandi að skera niður umr. um jafnalvarlegt mál og þetta, að almenningur fái að sjá endurskoðaða landsreikningana, áður en þeir eru margra ára gamlir. Í till. er farið fram á, að landsreikningarnir séu ekki meira en ársgamlir frá því ári, sem þeir eiga að gefast út, og hæstv. ríkisstj. verður vitanlega að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir, einnig að biðja þ. að velja endurskoðendur og skapa þeim nauðsynleg vinnuskilyrði, og allt þetta felst í till. fyrir menn, sem vilja lesa hana eins og almennt mál er lesið. Sé ég því enga ástæðu til þess að taka till. aftur til athugunar.