21.02.1944
Neðri deild: 15. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2033 í B-deild Alþingistíðinda. (5720)

Sextugsafmæli tveggja þingmanna

Jörundur Brynjólfsson:

Ég vil þakka hæstv. forseta Sþ. fyrir hin hlýlegu og óverðskulduðu orð í minn garð. Enn fremur þakka ég hv. þm. fyrir þá virðingu, sem þeir hafa sýnt mér, og fyrir þá velvild, sem ég hef alltaf notið hér í hv. deild. Það, sem kann að hafa farið sæmilega úr hendi af mínum störfum hér á Alþingi, er miklu fremur að þakka þeirra velvild og skilningi og sívakandi áhuga á, að þingstörfin yrðu vel af hendi leyst. — Ég vil endurtaka þakkir mínar til hæstv. forseta Sþ. og hv. þm.