23.10.1944
Neðri deild: 69. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 2052 í B-deild Alþingistíðinda. (5813)

Fjarvistir þingmanna

Sigurður Bjarnason:

Ég vil leyfa mér að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forseta, hvort fyrir liggi tilkynningar frá öllum þeim hv. þm., sem fjarstaddir eru, um að þeir séu forfallaðir eða hvort þeir hafa fjarvistarleyfi, og hlýtur það að vera, þar sem svo mikinn hluta deildarmanna vantar, að þeir hafi annaðhvort boðað lögleg forföll eða fengið fjarvistarleyfi. Ég leyfi mér að spyrja hæstv. forseta um þetta.