16.12.1944
Sameinað þing: 77. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 676 í D-deild Alþingistíðinda. (5847)

224. mál, virkjun Fljótaár

Forseti (GSv):

Ég vil geta þess, að í Sþ. verður varla haldinn fundur til mikilla málaflutninga fyrir jól, svo að varla verða afgr. öll þau mál, sem á dagskrá eru, nema menn taki mál sín aftur eða stytti mál sitt. Vil ég nú spyrja þá, sem hér eiga hlut að máli, hvort þeir vilji mæta í kvöld á þingfundi, því að í gær varð ekki unnt að hafa fund sökum þess, hve fáir mættu. (HermJ: Við getum ekki mætt í kvöld.) Mér skilst, að eigi verði unnt að halda þingfund í kvöld.