04.12.1944
Sameinað þing: 69. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í B-deild Alþingistíðinda. (585)

143. mál, fjárlög 1945

Forseti (GSv):

Hefst þá umræðutími þingflokkanna um frv. til fjárl. fyrir árið 1945. Fær hver þingflokkanna 45 mín. til umráða, og verður farin ein umferð.

Fyrst talar af hálfu Framsfl. Hermann Jónasson, en síðan tala fulltrúar þingflokkanna í þeirri röð, er hér segir:

a) Af hálfu stuðningsmanna ríkisstj. í Sjálfstfl.

b) Af hálfu Sameiningarfl. alþýðu, Sósfl.

c) Af hálfu Alþfl.