02.03.1945
Sameinað þing: 99. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 697 í D-deild Alþingistíðinda. (5872)

224. mál, virkjun Fljótaár

Forsrh. (Ólafur Thors):

Eftir að hafa heyrt yfirlýsingu hæstv. samgmrh. vil ég mæla með, að samþ. verði brtt. hæstv. atvmrh. Ég sé ekki, að ástæða sé til að samþ. till. hv. þm. Barð., og þar sem komin er fram ósk frá hæstv. atvmrh. um, að ákvæði um rannsókn standi ekki í till. sjálfri, teldi ég viðfelldið fyrir Alþ. að verða við þeirri ósk.