26.02.1945
Sameinað þing: 97. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 699 í D-deild Alþingistíðinda. (5882)

260. mál, kaup Þórustaða í Ölvusi

Sigurður Kristjánsson:

Herra forseti. — Ég tek til máls sökum þess, að hv. frsm. láðist að geta þess, að mitt nafn er undir nál. af misgáningi.

Ég gat ekki verið því samþykkur, að ríkið keypti jörðina á því vissa verði, sem hér er áætlað og er langt frá því að vera hæfilegt, og tel ég slíkt algerlega óhugsandi.