05.10.1944
Sameinað þing: 52. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í D-deild Alþingistíðinda. (6044)

151. mál, póstsamband milli Íslands og Ameríku

Flm. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. — Ég vil þakka hæstv. utanrrh. fyrir aðgerðir hans í þessu máli, en mér þætti ekki skaða að samþ. till. þrátt fyrir það, því að það væri alltaf styrkur fyrir hæstv. ríkisstj. í samningum sínum við Bandaríkjastjórn að geta sýnt, hver vilji Alþ. er í þessu máli. Ég vil því vænta þess, að till. verði nú samþ. og þá helzt án n. til þess að flýta afgreiðslu hennar sem mest.