30.11.1944
Sameinað þing: 68. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 825 í D-deild Alþingistíðinda. (6057)

184. mál, hlutleysi ríkisútvarpsins

Forseti (GSv):

Það lítur út fyrir, að ekki verði hægt að komast til enda þessa máls á þessum fundi. Fundurinn stendur að vísu til kl. 4 og á mælendaskrá er að vísu ekki nema einn maður sem stendur. (EystJ: Ég get lokið mínu máli fyrir kl. 4). Já, en það getur dregið dilk á eftir sér. Það hefur enga þýðingu, þó að meðferð málsins verði frestað í dag til annars dags. Verður látið skeika að sköpuðu, en ég sé mér ekki fært að takmarka umr. að svo vöxnu.