06.12.1944
Sameinað þing: 71. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 835 í D-deild Alþingistíðinda. (6064)

184. mál, hlutleysi ríkisútvarpsins

Forsrh. (Ólafur Thors):

Ég skal viðurkenna það út af umræddu atriði, að hæstv. forseti Sþ. kom til mín og fór orðum um það, hvernig hann ætti að kynna ræðumenn úr forsetastóli. Lét ég mér það í léttu rúmi liggja og kvaðst ekki mundu taka neina ábyrgð á gerðum forseta. Álít ég þetta svipað og ef einhver þeirra þm. Sjálfstfl., sem styðja ríkisstj., hefðu kvatt sér hljóðs og sagt: Ég tala f. h. þeirra manna, sem ekki styðja forseta Sþ.