15.01.1945
Sameinað þing: 83. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 908 í D-deild Alþingistíðinda. (6210)

229. mál, fjöldi dómara í hæstarétti

Flm. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. — Till. þessari fylgir ýtarleg grg., og sé ég eigi ástæðu til þess að bæta nokkru þar við, ef mótmæli koma ekki fram. Ég vil aðeins minna á það, að hæstiréttur er nú búinn að starfa í 25 ár, eða aldarfjórðung, og er því fremur en ella ástæða til þess að framfylgja þessu lagaákvæði. Ég tel óþarft að vísa málinu til n., en læt það þó afskiptalaust.