07.03.1944
Neðri deild: 27. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 936 í D-deild Alþingistíðinda. (6291)

55. mál, Þormóðsslysið

Atvmrh. (Vilhjálmur Þór):

Í tilefni af orðum hæstv. dómsmrh. um, að leita þyrfti til atvmrn. um leyfi til birtingar á skýrslu sjódómsins, þá stendur ekki á því. Ef hæstv. dómsmrh. telur, að samþykki atvmrn. þurfi til, þá er það fyrir hendi, og hefur aldrei á því staðið.