18.12.1944
Sameinað þing: 78. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 647 í B-deild Alþingistíðinda. (686)

143. mál, fjárlög 1945

Sigurður Bjarnason:

Herra forseti. — Ég verð að leyfa mér að líta svo á, að þessi mátulega yfirlætislegu orð, sem hv. frsm. lét falla, séu í fullu samræmi við orð hv. 1. þm. Rang. Mér virtist orð hans setja verðugt innsigli á framkomu hv. fjvn. hér á Alþ. að þessu sinni.

Ég vil undirstrika orð hv. þm. Barð. um það siðferði, sem hv. fjvn. hefur tileinkað sér.