19.12.1944
Sameinað þing: 79. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 651 í B-deild Alþingistíðinda. (693)

143. mál, fjárlög 1945

Jörundur Brynjólfsson:

Ég þykist kunna að meta vilja þann, sem kemur frá hv. 1. þm. Rang. í því að greiða fyrir byggingu og stofnun þessa skóla. En eigi að síður, þar sem meðferð fjárl. er. svo langt komið, að tæpast er nú unnt að gera þær ráðstafanir, sem til þess þó þyrfti, ef samþ. ætti þessa till. svona, — svo há sem hún er, — og þar sem þetta mál er nú á byrjunarstigi, þá skilst mér, sem á næstu árum þurfi ekki endilega að koma að sök, þótt ekki standi á fjárl. þessa árs mjög há upphæð. En í þeirri von, að ríflega verði veitt til þessa skóla á næsta ári, þá ætla ég að eftirláta öðrum að ráða úrslitum þessarar till. og sit hjá við atkvgr.