19.12.1944
Sameinað þing: 79. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 652 í B-deild Alþingistíðinda. (701)

143. mál, fjárlög 1945

Bjarni Ásgeirsson:

Mér þykir nú að vísu þessi upphæð býsna há, sem hér liggur fyrir till. um, og harma það, að ekki skyldu fást afbrigði fyrir varatill. hér á fundi í gær með hálfu lægri upphæð, sem mér hefði þótt falla nokkuð vel inn í þessar framkvæmdir, en þar sem hún liggur ekki fyrir og þessi upphæð sýnist nær því rétta en upphæðin í fjárl., verð ég að segja já.