29.11.1944
Neðri deild: 84. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í B-deild Alþingistíðinda. (720)
88. mál, tollskrá o.fl.
Barði Guðmundsson:
Var það meining herra forseta, að ég léti þessa atkvgr., sem nú fór fram, fara fram án þess að mér hefði gefizt tóm til að athuga þskj.? Ef þetta hefur verið meining hæstv. forseta, þá vil ég þakka honum fyrir þann mikla heiður, sem hann hefur sýnt mér með því að taka . sæti í hans virðulega stól og láta þessa atkvgr. fara fram án nokkurs undirbúnings.