07.12.1944
Efri deild: 84. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 663 í B-deild Alþingistíðinda. (759)
164. mál, prófessorsembætti í heilbrigðisfræði
Magnús Jónsson:
Það væri í sjálfu sér eðlilegt, að þau frv. um stofnun nýrra embætta við háskólann, sem hér eru fram komin, væru formsins vegna felld saman. En þó er þess að gæta, og vil ég segja það út frá því, sem hv. 6. þm. Reykv. sagði, að náttúrlega er það dálítið vafamál, hvort þetta frv. gefur rétta eða ranga mynd af þeirri aukningu við háskólann, sem hér um ræðir, því að það er auðvitað, að með því frv., sem er hér næst á undan, er stofnað til þess kostnaðar, sem hér um ræðir. Það gæfi því skakka mynd um aukinn kostnað, að frv. þetta yrði fellt inn í till. En það gæti hins vegar farið betur á því, að þessi frv., sem a.m.k. að forminu til eru um stofnun háskólakennaraembætta, væru felld saman, því að það er aðeins að forminu til ætlazt til þess, að þessir kennarar verði fastir kennarar við háskólann. Það er í rauninni ætlazt til þess, að þeir starfi næstum eingöngu á öðrum sviðum, þó að starfskraftar þeirra verði notaðir til einhverra fyrirlestra í vísindagreinum við háskólann. En það er eitt atriði, sem ég vildi benda þeirri n. á, sem hefur þetta mál til meðferðar, og það er, hvort ekki væri ástæða til að orða skýrar 3. gr. frv. en þar stendur: „Um prófessorinn í heilbrigðisfræði gilda að öllu sömu reglur sem um prófessoraná, sem fyrir eru við háskólann.“ Ég geri ráð fyrir, að þarna sé átt við launakjörin, en ég vil benda á það, að prófessorar við háskólann hafa tvenns konar launakjör, og gæti verið nokkur vafi um það, undir hvorn flokkinn þessi kennari ætti að falla. Nokkrir prófessorar í læknadeild hafa miklu hærri laun en aðrir, það er ekki lögbundið nú, en það er lögbundið í því launalagafrv., sem nú liggur fyrir þinginu, þar sem þeir gegna jafnframt störfum sem yfirlæknar á Landsspítalanum. Þessi prófessor verður einnig forstöðumaður rannsóknarstofnunar og kemur því í annan launalagaflokk. Ég vil því spyr ja hv. frsm., í hvorn launalagaflokkinn þessi prófessor kæmi. Það er nokkurt tilefni til að ætla, að hann mundi falla undir hærri launaflokkinn, þar sem hann á að gegna þessum störfum fyrir manneldisráð jafnframt því, sem hann er kennari við háskólann. Nú veit ég ekki, hvort ætlazt er til þess, að hann færi í hærri launaflokkinn, en það verður að vera á því hreina, og væri rétt að taka tillit til þess í launalagafrv.