14.11.1944
Efri deild: 66. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 712 í B-deild Alþingistíðinda. (909)

179. mál, skemmtanaskattur

Menntmrh. (Brynjólfur Bjarnason):

Hér er aðeins um að ræða framlengingu á l., sem fallin eru úr gildi.

Þetta frv. veitir aðeins heimild til þess að innheimta skemmtanaskatt með viðauka, eins og gert hefur verið. Er ríkisstj. nauðsyn á þessum tekjum nú, engu síður en undanfarið, og legg ég til, að frv. verði samþ.