05.01.1945
Efri deild: 91. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 679 í B-deild Alþingistíðinda. (92)

217. mál, skipun læknishéraða

Félags- og dómsmrh. (Finnur Jónsson):

Herra forseti. Þetta frv. er flutt samkv. till. mþn., og nægir að vísa til nál. og grg. þess. En þar sem þetta var ekki afgreitt fyrir áramót, þá flyt ég brtt. við 3. gr. frv., og er hún afleiðing þess, að þessu seinkaði svona. Ég vil svo óska, að hæstv. forseti geti flýtt svo fyrir málinu, að það nái til Nd. í dag.