02.02.1945
Sameinað þing: 90. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 729 í B-deild Alþingistíðinda. (976)

251. mál, fjáraukalög

Frsm. (Sigurður Kristjánsson):

Út af því, sem hv. þm. sagði, vil ég benda á, að skammt er liðið frá því, að ég gerði grein fyrir þessu.

Ég hef að vísu skrifað nál., en gerði það með samþykki n., og hún taldi óþarft að hafa það nákvæmara, þar sem fyrir þessu er gerð grein í framsögu og kemur þannig í þingtíðindum. Það er vart samboðið öðrum en mönnum á andlegu gelgjuskeiði að láta sér slíkt ekki nægja.