02.02.1945
Sameinað þing: 90. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 729 í B-deild Alþingistíðinda. (977)

251. mál, fjáraukalög

Gísli Jónsson:

Ég vil benda hv. 7. þm. Reykv. á það, að nál. og framsöguræða er alls ekki hið sama, og það er engan veginn víst, að allir nm. skrifi undir allt það, sem háttv. 7. þm. Reykv. segir í framsöguræðu.

En það, sem orsakar, að ég hef hreyft þessu, er það, að hér er gengið fram hjá aðalatriði málsins og allar þingræðisreglur brotnar í meðferð þess.