17.04.1946
Neðri deild: 114. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2163 í B-deild Alþingistíðinda. (107)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Eysteinn Jónsson:

Ég vil fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann taki á dagskrá frv. til l. um breyt. á jarðræktarlögunum sem fyrst. Þetta er eitt elzta mál þingsins og aðkallandi afgreiðsla á því. Enn fremur, ef mögulegt væri, frv. til l. um breyt. á l. um ræktunarsjóð.