08.11.1945
Efri deild: 25. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 867 í B-deild Alþingistíðinda. (1073)

72. mál, strandferðaskip

Eiríkur Einarsson:

Ég skal aðeins taka það fram, þar sem málinu verður sennilega vísað til samgmn., að ég skal gera mitt til þess, að fundur verði kvaddur saman í kvöld eða í fyrramálið, og hygg ég, að ef engin stífla kemur í meðferð málsins á þeim fundi, ætti ekki að þurfa að verða nein töf á málinu, og ég skal gera mitt til, að því verði hraðað svo sem óskað er.