17.04.1946
Neðri deild: 114. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2163 í B-deild Alþingistíðinda. (108)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Skúli Guðmundsson:

Á dagskránni í gær var frv. til l. um breyt. á l. um tollskrá. Það var ekki afgr., ,og sakna ég þess því á dagskránni í dag. Ég vil beina þeim tilmælum til hæstv. forseta, að hann taki það á dagskrá næsta fundar.