01.11.1945
Efri deild: 19. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 876 í B-deild Alþingistíðinda. (1111)

10. mál, jarðræktarlög

Frsm. meiri hl. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. Það varð að samkomulagi í landbn., að þetta frv. og 23. mál, um byggingar- og landnámssjóð, skyldu ekki verða með öllu skilin að við afgr. hér í d., en enn þá hefur ekki unnizt tími til að afgr. nál, um það mál. Vil ég nú fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann taki þetta mál af dagskrá að þessu sinni.