27.11.1945
Neðri deild: 40. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 885 í B-deild Alþingistíðinda. (1139)

10. mál, jarðræktarlög

Frsm. (Jón Pálmason) :

Herra forseti. Þetta frv. er gamall kunningi hér á Alþ., en það er um afnám 17. gr. jarðræktarlaganna, eins og kunnugt er. Ég þarf ekki að fara um það mörgum orðum. Meiri hl. landbn. mælir með frv. Tveir nm. hafa skrifað undir með fyrirvara, og munu þeir væntanlega gera grein fyrir því. Þar sem hér hafa oft áður orðið allmiklar umræður um málið, vil ég vænta þess, að það fái nú greiða afgreiðslu eins og það fékk í Ed. — Ég legg svo til, að frv. verði samþ. óbreytt.