27.11.1945
Neðri deild: 40. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 886 í B-deild Alþingistíðinda. (1142)

10. mál, jarðræktarlög

Frsm. (Jón Pálmason) :

Það mun ekki ástæða til að þræta um þetta við hv. þm. Mýr. En það mun hafa verið ætlun allra og annað ekki komið til mála en að þessi séreign félli aftur til jarðarinnar, þegar grundvellinum er kippt undan fyrri skipan þessara mála.