26.04.1946
Neðri deild: 123. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 2165 í B-deild Alþingistíðinda. (120)

Afgreiðsla mála úr nefndum o. fl.

Pétur Ottesen:

Ég ætlaði að mælast til þess við hæstv. forseta, að hann tæki fyrir á næsta fundi frv. um lántöku til hafnarframkvæmda. Eins og hann án efa minnist, var samþ. að vísa þessu máli ekki til n. til að flýta afgreiðslu þess. Hefur hæstv. forseti þar áþreifanlega sönnun fyrir nauðsyn þessa máls.