19.11.1945
Neðri deild: 35. fundur, 64. löggjafarþing.
Sjá dálk 952 í B-deild Alþingistíðinda. (1393)

94. mál, sala Staðarhöfða

Pétur Ottesen:

Herra forseti. Ég vil þakka hv. landbn. fyrir þá afgreiðslu, sem hún hefur sýnt þessu máli. Landbn. taldi hagkvæmara og eðlilegra að flytja um þetta sérstakt frv. en að tengja það við annað frv. um hliðstætt efni, sem þá lá fyrir hv. landbn. Í grg., sem frv. fylgir, er færð fram ástæðan fyrir því, hvers vegna fram á þetta er farið, en ég vil aðeins bæta því við, að litlar umbætur hafa verið gerðar á þessari jörð að undanförnu, og er ætlun hreppsn. með því að fá jörðina keypta að hefja ræktun á jörðinni og gera þar verulegar umbætur frá því, sem nú er.